

Leikskólakennari óskast í leikskólann Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa. Í leikskólanum eru 85 börn á aldrinum 1-6 ára og um 23 starfsmenn. Við erum staðsett í Reykjahverfi í Mosfellsbæ, umkringd yndislegri náttúru, bæði inn garðs og utan sem við nýtum okkur óspart.
Áherslur okkar veturinn 2026 – 2027 eru á nám í gegnum leikinn, lýðræði og náttúruna. Leikskólinn hlaut nýverið styrk úr Klörusjóði til þróunar innra starfs út frá áherslum leikskólans. Einnig verðum við þátttakendur í rannsókn á vegum Háskóla Íslands sem ber heitið Litlir laukar og snýr að bragðlaukaþjálfun. Við leggjum mikið upp úr lærdómssamfélagi og teymisvinnu þar sem starfsfólk fær tækifæri til að leggja sitt af mörkum og nýta styrkleika sína og áhugasvið í starfi.
Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag. Meginmarkmiðið er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan barna og starfsfólks í góðu samstarfi við foreldra.
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna, þar með talið að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldisfræðileg menntun.
- Reynsla af starfi í leikskóla æskileg.
- Góð færni í samvinnu og samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Áhugi á starfi með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf.
- Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð er skilyrði.
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum í leikskólum Mosfellsbæjar
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar sem eru 10 á ári.
Íslenska










