

Frístundaleiðbeinandi óskast í Vinahól
Langar þig í fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi starf með börnum?
Barnaskóli Kársness leitar að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi til starfa í frístundinni Vinahóli.
Vinahóll er frístund fyrir börn í 1.–4. bekk þar sem við leggjum áherslu á að skapa öruggt, skemmtilegt og fjölbreytt frístundastarf. Hjá okkur eiga börnin að fá tækifæri til að leika, skapa, eignast vini, prófa nýja hluti og njóta sín eftir skóladaginn.
Við erum að leita að einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með börnum, er tilbúinn að taka virkan þátt í starfinu og vill leggja sitt af mörkum til að skapa góða stemningu fyrir bæði börn og samstarfsfólk.
Barnaskóli Kársness er sameinaður grunn- og leikskóli í Kópavogi. Í grunnskólahluta skólans eru um 300 nemendur í 1.–4. bekk. Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.
Um tímabundna ráðningu er að ræða með möguleika á áframhaldandi starfi.
Vinnutími er kl. 13:00–16:00.
Við leitum að þér ef þú...
-
Hefur áhuga á að vinna með börnum
-
Ert jákvæð/ur, ábyrg/ur og áreiðanleg/ur
-
Mætir stundvíslega og tekur ábyrgð á þínum verkefnum
-
Átt auðvelt með samskipti og samstarf
-
Sýnir frumkvæði og ert tilbúin/n að taka virkan þátt í starfinu
-
Hefur þolinmæði og nærð góðu sambandi við börn
-
Hefur góða íslenskukunnáttu
- Taka virkan þátt í leik og starfi með börnunum
- Leiðbeina börnum og aðstoða þau við að komast af stað í leik og verkefni
- Stuðla að jákvæðum samskiptum, öryggi og vellíðan barna
- Taka þátt í fjölbreyttu frístundastarfi, bæði inni og úti
- Vera góð fyrirmynd fyrir börnin
- Vinna með öðrum starfsmönnum að því að skapa skemmtilegt og faglegt frístundastarf
- Sinna öðrum verkefnum innan frístundar í samráði við stjórnendur
- Reynsla af starfi með börnum er kostur en ekki skilyrði.
- Framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Góð íslennsku kunnátta skilirði.
- Stytting vinnuvikunnar
- Aðgangur að sundlaugum Kópavogs
- Fjölbreytt og líflegt starfsumhverfi
- Starf þar sem engir tveir dagar eru alveg eins
Íslenska










