
Stuðningsfulltrúi - Víkurskóli
Viltu þú starfa sem stuðningsfulltrúi í frábærum vinnustað? Finnst þér unglingar vera skemmtilegasta fólk í heimi?
Það er laust 50-60% starf stuðningsfulltrúa í Víkurskóla í Grafarvogi sem er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. -10. bekk.
Víkurskóli er staðsettur í norðanverðum Grafarvogi og er unglingaskóli fyrir 8.-10. bekk. Skólinn er nýsköpunarskóli þar sem lögð er áhersla á að þróa nýjar lausnir í námi og kennslu, öfluga teymisvinnu og virka og lýðræðislega þátttöku nemenda skólastarfinu.
Í Víkurskóla er meginstefið nýsköpunarhugsun, lausnarleit, tækni og teymisvinnu sem og leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar.
Víkurskóli er með regnbogavottun frá Reykjavíkurborg og er þátttakandi í grænum skrefum borgarinnar.
Leitað er að duglegum og kraftmiklum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með unglingum, starfa í teymum, aðstoða nemendur í daglegu skólastarfi.
Hægt er að kynna sér starfið á Facebooksíðu skólans Víkurskóli - nýsköpunarskoli https://www.facebook.com/profile.php?id=100063441866965
- Aðstoða nemendur undir handleiðslu sérkennara í námsveri skólans.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Hæfni til að vinna með unglingum
- Lipurð í samskiptum, hæfni og áhugi á að vinna í teymum og sveigjanleiki í starfi
- Góð íslenskukunnátta - kröfur um C1 samkvæmt Evrópska tungumálastaðlinum
- Samgöngustyrkur, sund- og menningarkort
- Ódýrt og gott mötuneyti og skemmtilegt samstarfsfólk
Íslenska










