

Sumarstarf á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar
Starfsmaður á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar
Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar auglýsir starf sumarafleysingafólks á skrifstofu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við tímaskráningar starfsmanna.
- Skráning og merking vinnuseðla fyrir verkbókhald.
- Símavarsla og afgreiðsla á ýmsum erindum bæjarbúa í samráði við verkstjóra og forstöðumann.
- Umsjón með vörslu gagna sem viðkoma daglegum rekstri í Þjónustumiðstöð.
- Öll almenn skrifstofustörf, þar með talið tölvuvinnsla í Word og Excel, tölvupóstaskriftir, skráning fundargerða flokkstjórafunda, samantekt á tímafjölda starfsmanna fyrir launadeild.
- Frágangur og skráning á umsóknum sumarstarfsmanna ásamt uppgjörsmálum.
- Önnur tilfallandi störf, t.d. umsjón í mötuneyti.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
Góð almenn tölvukunnátta kostur.
Starfsemi Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar
Þjónustumiðstöð Kópavogs hefur umsjón með flestum verkefnum sem tengd eru framkvæmdum á bæjarlandi. Innan þjónustumiðstöðvar eru verkefni sem tengjast snjómokstri, garðyrkju, gatnaviðhaldi, vatns- og fráveitu, sorphirðumálum og önnur þjónusta við íbúa, fyrirtæki og stofnanir.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Eflingar.
Starfshlutfall 100%
Starfstímabil 11. maí til 31. ágúst
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar í síma 441 9000











