

Stuðningur í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Tjörnin óskar eftir starfsfólki í frístundaheimili veturinn 2022 -2023.
Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar og býður upp á fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur.
Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur, en þeir eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Frístundamiðstöðin Tjörnin í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum starfrækir frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Eldflaugina við Hlíðaskóla, Frostheima f. börn úr 3. og 4. bekk Melaskóla, Grandaskóla og Vesturbæjarskóla, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla, Undraland við Grandaskóla og Selið við Melaskóla.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.











