
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Stuðningsfulltrúi óskast í sumarstarf á íbúðakjarna
Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í sumar í á íbúðakjarnanum Sólheimum 21b.
Þjónusta íbúðakjarnans miðar að því að íbúum líði vel og að auka sjálfstæði og lífsgæði þeirra. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í hóp frábærra starfsmanna. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs og er markmið okkar að veita framúrskarandi þjónustu. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Góð almenn menntun
-
Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg
-
Íslenskukunnátta B1 skilyrði
-
Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
-
Ökuréttindi æskileg en ekki skilyrði
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
-
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu og ýmis hlunnindi í boði fyrir starfsfólk
Auglýsing birt16. febrúar 2024
Umsóknarfrestur1. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Starfsmaður við umönnun í dagþjálfun Esjutúni
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á föstudögum og afleysingar.
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í fullt- og hlutastarf
NPA miðstöðin

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Starfsmaður á hæfingarstöð í Kópavogi
Hæfingarstöðin Dalvegi

Starfsfólk óskast í stoð- og stuðningsþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Spennandi starf í búsetu- og utankjarna þjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Aðstoðarmaður tannlæknis.
Tannlæknar Mjódd

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands