Garðabær
Garðabær
Garðabær

Stuðningsfulltrúi óskast í Sjálandsskóla

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 100% starf frá og með 1. ágúst 2022.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 260 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Menntunar- og hæfniskröfur
Gott vald á íslensku er skilyrði
Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Auglýsing birt4. ágúst 2022
Umsóknarfrestur18. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar