
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Leikskólakennari/leiðbeinandi í leikskólanum Klettaborg
Óskað er eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi
Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í faglegu leikskólastarfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi.
Áherslur leikskólans eru á málrækt, skapandi starf, hreyfing og útivera. Framundan er spennandi uppbyggingarstarf og skólaþróun sem felst í því að skólanámskrá leikskólans verður rýnd og tækifæri gefst til að skapa enn kröftugra starf. Einnig er leikskólinn að fara að vinna þróunarverkefnið STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar.
Einkunnarorð leikskólans eru sjálfstæði, virðing og gleði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leikskólakennari vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna, tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra. Hann fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og eða önnur uppeldismenntun
- Skýr fagleg sýn
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af uppeldi og menntun leikskólabarna
Fríðindi í starfi
- Starfsmenn leikskóla í Borgarbyggð fá 50% afslátt af leikskólagjöldum barna sinna
- Heilsustyrkur, afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
- 36 klst. vinnuvika
Auglýsing birt29. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgarbraut 101, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Sérkennari /þroskaþjálfi/ uppeldismenntaður starfsmaður
Dalskóli

Leikskólakennari óskast í allt að 100% starf
Leikskólinn Ylur

Lausar stöður leikskólakennara eða leiðbeinanda
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Snemmtæk íhlutun - Sérkennsla - Leikskólinn Reynisholt
Reykjavíkurborg: Skóla- og frístundasvið

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt