

Stuðningsfulltrúi í sérdeild- hlutastarf
Í skemmtilegan og fjölbreyttan starfsmannahóp vantar okkur stuðningsfulltrúa frá 22 ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða afleysingu í sérdeild skólans að minnsta kosti til áramóta. Um er að ræða hlutastarf, 75-80% starfshlutfall.
Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag, samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.
Í sérdeild Fellaskóla eru 15 nemendur á einhverfurófi víðsvegar að úr Reykjavík. Markmið starfsins er að efla nemendur til sem mestrar þátttöku í skólastarfinu. Allir nemendur eru hluti af sínum árgangi og sækja kennslustundir með öðrum nemendum eins og hægt er.
Stuðningsfulltrúi starfar náið með kennurum og öðrum stuðningsfulltrúum . Næsti yfirmaður er deildarskóli sérdeildar.
Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekk. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur.
Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.
Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi. Við leitum bæði að áhugasömum kennurum og leiðbeinendum með fjölbreytta menntun og bakgrunn.
- Að aðstoða nemanda / nemendur á yngra stigi við þátttöku í skóla og athafnir daglegs lífs í skóla
- Að aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/ einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara
- Að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skóla
- Að fylgja nemendum í skóla, í frímínútum og í vettvangsferðum
- Samskipti og samstarf við börn, foreldra, forráðamenn og starfsfólk
- Áhugi á að starfa með börnum
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Færni í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta (B1)
- Kunnátta í erlendu tungumáli er kostur












