Stuðningsfulltrúi á áfangaheimili
Óskað er eftir starfsmanni á stuðnings- og áfangaheimili Samhjálpar að Miklubraut í Reykjavík.
Um starfið:
Á áfangaheimilum Samhjálpar er unnið að því að styðja íbúa til virkni og þátttöku í daglegu lífi. Íbúar á áfangaheimilunum eru einstaklingar sem hafa átt við langvarandi vímuefnavanda að stríða og hafa flóknar þjónustuþarfir.
Helstu verkefni starfsins eru að styðja íbúa til sjálfstæðis og valdefla þá til lífs í bata. Aðstoða við innkaup, matargerð og önnur tilfallandi verkefni eftir því sem við á.
Um 75% starf er að ræða á dagtíma. Frí um helgar.
Hæfniskröfur:
Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og metnað í starfi. Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði, jákvæðu viðhorfi, sjálfstæði í vinnubrögðum auk góðra samskiptahæfileika. Hæfni til að tjá sig á ensku er skilyrði, þar sem íbúar eru ekki allir íslenskumælandi. Hæfni í pólsku er kostur.
Lipurð og áreiðanleiki eru skilyrði.
Reynsla af vinnu með fólk er æskileg.
Menntun sem nýtist í starfi t.d félagsliðamenntun er kostur.
Hreint sakavottorð er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2025.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
- Helstu verkefni starfsins eru að valdefla íbúa til bata í virkni í daglegu lífi. Aðstoða við innkaup, matargerð og önnur tilfallandi verkefni eftir því sem við á.
- Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi. Tilvalið fyrir háskólanema, t.d. í félagsráðgjöf, sálfræði, hjúkrunarfræði eða skyldum fögum. Þekking á helstu ritvinnsluforritum. Ökuleyfi er áskilið.