Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Stuðningsaðili á velferðarsviði

Liðveitendur, persónulegir ráðgjafar og tilsjón

Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki til að sinna fjölbreyttri stuðningsþjónustu við einstaklinga, börn, unglinga og fullorðna í daglegu lífi innan og utan heimilis. Markmið þjónustunnar hjá Kópavogsbæ er að veita persónulega og einstaklingsmiðaða þjónustu.

Um er að ræða starf sem miðar að hvatningu við félagslega þátttöku, tómstundir og uppbyggilega samveru og hjá börnum og unglingum getur einnig verið um heimanámsaðstoð og hjá fullorðnum við heimilihald og aðstoð við athafnir daglegs lífs.

Hæfniskröfur

  • Jákvæðni og áhuga á að starfa með einstaklingum á öllum aldri
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi, samviskusemi og reglusemi
  • Gott er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fötluðum en þó ekki skilyrði þar sem það er misjafn eftir málum
  • Umsækjandi þar að hafa náð 20 ára aldri
  • Æskilegt er að töluð sé íslenska

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Vinnutími á mánuði er frá 8 til 30 klst. en fer það eftir þörfum hvers einstaklings.
  • Vinnutími er breytilegur, virkir dagar og helgar, oft eftir kl.15.00 á virkum dögum en sumir þjónustuþegar hafa þörf fyrir morgun og eða kvöldtíma.
  • Um er að ræða tímavinnu og tímabundna ráðningu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði og veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Upplýsingar um starfið veitir Dagný Björk Pétursdóttir [email protected]

Auglýsing birt12. ágúst 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 6, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar