
Thor Ice Chilling Solutions
Thor Ice Chilling Solutions er hátæknifyrirtæki sem hannar, þróar og framleiðir ískrapakælilausnir fyrir matvælaiðnað, með sérstaka áherslu á kjúklingavinnslu og fiskeldi. Á meðal viðskiptavina er stærsti kjúklingaframleiðandi Evrópu.
Einkaleyfisvarin IceGun tækni fyrirtækisins leysir stór vandamál í kjúklingavinnslu og gerir framleiðendum mögulegt að auka framleiðslu, bæta kælingu, uppfylla reglugerðir, auka fæðuöryggi og draga úr matarsóun. Mikilvægur þáttur í þessum lausnum er mælitækni, stýringar og vinnsla á gögnum.
Thor Ice var valið í hóp EIT Food Rising Food Stars og hefur meðal annars fengið verðmætan stuðning frá Tækniþróunarsjóði Rannís, Norræna græna bankanum (Nefco) og Evrópusambandinu.
Fyrirtækið er með starfsemi í Reykjavík þar sem fjölbreyttur hópur starfar á ólíkum sviðum. Nýlega fjárfesti Alfa Framtak í Thor Ice og stefnir því í mikla sókn á næstu mánuðum.
Störf í þróunar- og framleiðsludeild
Leitað er að metnaðarfullum og duglegum einstaklingum í þróunar- og framleiðsludeild fyrirtækisins. Viðkomandi aðilar munu koma að þróun og uppsetningu á kælilausnum fyrirtækisins. Thor Ice hefur nýlokið fjármögnun sem leidd var af Alfa Framtak og stefnir í sókn á næstu mánuðum. Því eru spennandi tímar framundan og mikil tækifæri til þátttöku í vexti til framtíðar.
Helstu verkefni:
- Þróun og uppsetning á vélum og kælilausnum
- Vinna við framleiðslu og samsetningu búnaðar
- Hönnun véla og búnaðar
- Stýringar og hugbúnaður, t.d. PLC forritun
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. vélstjóri, tæknifræðingur, hugbúnaðarsérfræðingur
- Þekking á kælimiðlum kostur, sérstaklega ammoníaki
- Þekking og reynsla af forritun á PLC kerfum er kostur
- Góð samskiptahæfni, frumkvæði og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð, lausnarmiðuð hugsun og jákvæðni
Auglýsing birt18. nóvember 2022
Umsóknarfrestur5. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skútuvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri / verkefnastjóri í byggingarframkvæmdum
Landris Byggingar ehf.

Kælivélamaður / Vélfræðingur
Hitastýring hf.

Verkefnastjóri með reynslu af stálsmíði og mannvirkjaverkefnum
Stál og Suða

vélvirkjar - Vélsmiðja
VHE

Technical Operations Specialist
Hefring Marine

Verkstjóri í framleiðslu
Nói Síríus

Viknordik leitar að verkefnastjóra
VikNordik ehf.

Kjötvinnsla - framtíðarstarf
Kjötkompaní ehf.

Mechanical Subject Matter Expert
atNorth

Ert þú sérfræðingur í hönnun og tækni?
Orkuvirki

Ert þú reynslumikill vélvirki eða vélstjóri?
Orkuvirki

Verk- eða tæknifræðingur í stjórnendastarf
Brú Talent ehf.