Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Starfsmaður óskast í umönnun

Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.

Við leitum nú að starfsmanni í umönnun til starfa. Starfshlutfall 60-100% og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Styðja, leiðbeina og hvetja þjónustuþega
  • Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi
  • Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir
  • Samskipti við aðstandendur notenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt1. nóvember 2024
Umsóknarfrestur24. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vífilsstaðir land , 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar