
Starfsmaður óskast í bókhaldsteymið okkar
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum starfsmanni til að ganga til liðs við bóhaldsteymið okkar. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á bókhaldi og fjármálum, vinnur skipulega og vill þróast í fjölbreyttu og faglegu starfsumhverfi.
Hjá okkur færð þú tækifæri til að vinna með fjölbreyttum hópi viðskiptavina og taka þátt í krefjandi og áhugaverðum verkefnum. Við leggjum áherslu á góða liðsheild, vönduð vinnubrögð og að starfsfólk fái svigrúm til að vaxa og þróast í starfi.
Færsla og afstemming bókhalds, uppgjör og skil virðisaukaskatts, launavinnsla og tengd skil, samskipti við viðskiptavini og önnur verkefni tengd bókhaldi.
Við leitum af einstaklingi sem hefur reynslu af bókhaldi, er nákvæmur og skipulagður, hefur góða þekkingu á helstu bókhaldsforritum og hefur áhuga á stafrænum lausnum, hefur áhuga og metnað í að þróast í starfi.
Íslenska
Enska








