

Bókari / Sérfræðingur á fjármálasviði MyGroup
Bókari / sérfræðingur á fjármálasviði
MyGroup er eignarhaldsfélag og undir félagið heyra Konvin Hótel, Konvin Car Rental og Konvin Fasteignir - félög sem starfa saman sem ein heild í fjölbreyttu umhverfi ferðaþjónustu og fasteignareksturs. Vegna aukinna umsvifa er fjármálasvið samstæðunnar að stækka og leitum við því að nákvæmum og drífandi einstakling á fjármálasvið MyGroup til að taka þátt í fjölbreyttum og síbreytilegum verkefnum.
Viðkomandi vinnur náið með aðalbókara félagsins og tekur að sér ákveðin verkefni, meðal annars tekjubókun, afstemmingar og innheimtu. Starfið veitir góða innsýn í reksturinn og tækifæri til að taka að sér fleiri og stærri verkefni þegar fram líða stundir. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á tölum, rekstri og umbótum ferla.
- Reikningagerð og bókun tekna þvert á sölu- og bókunarkerfi félaganna, meðal annars vegna erlendra viðskiptavina og ferðaskrifstofa.
- Afstemming tekna, greiðslna og uppgjöra frá kortafyrirækjum.
- Innheimta viðskiptakrafna og eftirfylgni með útistandandi reikningum.
- Afstemming á milli bókhalds og bókunarkerfa.
- Aðkoma að undirbúning mánaðarlegra uppgjöra og afstemmingar því tengdu.
- Samskipti við viðskiptavini, birgja, samstarfsaðila og opinbera aðila.
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
- Þekking, menntun eða reynsla á sviði fjárhagsbókhalds og reikningshalds.
- Góð tölvukunnátta áskilin og lagni við að tileinka sér ný kerfi; reynsla af Business Central og Excel er kostur.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
- Nákvæmni, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund.
Fjölbreytt og krefjandi starf hjá samstæðu í örum vexti, góð innsýn í reksturinn og tækifæri til að vaxa í starfi.
Íslenska
Enska






