Bay View Apartments
Bay View Apartments

Starfsmaður í þrif - 250 Suðurnesjabæ

Bay View Apartments leitar að ábyrgðarfullum og áreiðanlegum verktaka í þrif fyrir íbúðir í leigu fyrir ferðamenn.

Þrifin eru bæði virka daga og um helgar.

Unnið er í kringum brottför gesta og er því mikilvægt að starfsmaður sé sveigjanlegur hvað tímasetningu á þrifum varðar og búi á svæðinu til þess að geta mætt á staðinn með skömmum fyrirvara.

Álag og vinnumagn fer eftir því hversu margar íbúðir eru til þrifa hverju sinni.


Um íbúðirnar:
Um er að ræða 4 íbúðir staðsettar í Garði, Suðurnesjabæ.


Við leitum helst að verktaka sem býr í nágrenninu.

Hlökkum til að heyra frá þér!

_______________________________

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þrif á íbúðum í skammtímaleigu fyrir ferðamenn
  • Þrif milli brottfarar og komu gesta
  • Skipti á rúmfötum og handklæðum
  • Þvo þvott og ganga frá
  • Að tryggja snyrtimennsku, hreinlæti og góðan frágang

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þekking á almennum þrifum er æskileg
  • Ábyrgðartilfinning og áreiðanleiki
  • Geta til að vinna sjálfstætt
  • Nákvæmni og góð skipulagshæfni
  • Verktakastaða (kennitala og reikningagerð)
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gauksstaðir 195820, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar