Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar

Íþróttamiðstöðin Varmá óskar eftir öflugri konu til starfa í 85% vaktavinnu

Íþróttamiðstöðin Varmá óskar eftir öflugri konu til starfa í 85% vaktavinnu

Íþróttamiðstöðin Varmá í Mosfellsbæ leitar að öflugri konu til starfa í 85% stöðu í vaktavinnu. Vinnutími skiptist á milli morgunvakta, kvöldvakta og helgarvakta. Um er að ræða fjölbreytt starf í lifandi umhverfi þar sem góð þjónusta, öryggi og snyrtimennska eru í fyrirrúmi.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Athugið: Þar sem hluti starfsins felur í sér klefavörslu í kvennaklefum er sérstaklega óskað eftir kvenkyns umsækjanda, í samræmi við eðli starfsins og reglur um friðhelgi og öryggi gesta.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Þjónusta við viðskiptavini, nemendur, kennara, íþróttaiðkendur og þjálfara þeirra
  • Bað – og sundlaugavarsla
  • Þrif
  • Afgreiðsla
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Krafa er gerð um gilt hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum Boðið er upp á námskeið fyrir alla starfsmenn við upphaf ráðningar
  • Viðkomandi þarf að vera jákvæður, með mjög góða samskiptahæfileika og ríka þjónustulund
  • Reynsla af því að vinna með börnum og unglingum er mjög mikilvæg (leikskóli, grunnskóli, íþróttaþjálfun)
  • Hæfni til þess að vinna á uppbyggilegan hátt í teymi er mikilvæg
  • Þekking og reynsla af skyndihjálp er mikilvæg
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður er mikilvægt
  • Samviskusemi og stundvísi er skilyrði
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur18. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skólabraut 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar