Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar: sundlaugarvörður

Hjá Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar er laus 100% vaktavinnustaða til umsóknar sundlaugavarðar (kvenkyns). Um ótímabundið starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

·      Sundlaugagæsla

·      Klefavarsla

·      Afgreiðsla og samskipti við viðskiptavini Íþróttamiðstöðvar

·      Þrif mannvirkis

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Reynsla af sambærilegum störfum er kostur

·       Reynsla af þjónustustörfum er kostur

·       Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur

·       Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða

·       Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund

·       Góð íslenskukunnátta er kostur

·       Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði

·       Hreint sakavottorð

Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dalvík , 620 Dalvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar