
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.
Ræsting á Klíníkinni
Klíníkin Ármúla leitar eftir áreiðanlegum og duglegum einstaklingi til starfa við ræstingar og önnur tilfallandi verkefni á Klíníkinni.
Viðkomandi þarf að vinna vel í teymi, vera stundvís, lausnarmiðaður, sýna frumkvæði, vera sveigjanlegur og viðhafa sjálfstæð vinnubrögð.
Um er að ræða 100% starf og ráðning er hugsuð til framtíðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hreint sakarvottorð
- Líkamlegt hreysti
- Viðkomandi þarf að geta bjargað sér á íslensku.
Hvetjum öll til að sækja um!
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur1. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiSnyrtimennskaStundvísiÞrif
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Helgarstörf við þrif í íbúðarhóteli og hosteli á Akureyri
Akureyri Hostel ehf

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - Ræstitæknir
Reykjanesbær

Störf í ræstingum á Dalvík- Mism. starfshlutföll / Cleaning jobs in Dalvík - Full and part time
Dagar hf.

Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali

Nettó Hrísalundi - umsjón
Nettó

Manufacturing Cleaning Specialist
Alvotech hf

Starfsfólk óskast til ræstinga
Hreint ehf

Íþróttamiðstöðin á Blönduósi - sundlaugarvörður.
Húnabyggð

Hlutastörf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur

Starfsmaður við þrif íbúða
Byggingafélag námsmanna