
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.

Áhugasamir sjúkraþjálfarar óskast til starfa!
Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á náið samstarf við lækna og annað fagfólk. Athugið að um verktakastarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að sjúkraþjálfurunum á eftirfarandi sviðum:
- Sjúkraþjálfara með áhuga á kvenheilsu (grindarbotni, meðgöngu, og fæðingartengdum kvillum o.þ.h.)
- Sjúkraþjálfara með áhuga á stoðkerfismeðferð á baki, ökklum eða höndum.
Við bjóðum upp á
- Góða og vel útbúna aðstöðu
- Náið og gott samstarf við lækna og annað starfsfólk
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Jákvætt og styðjandi vinnuumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilding sem sjúkraþjálfari
- Reynsla af ofangreindum sviðum er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um!
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á [email protected]
Auglýsing birt13. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 7, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)


