Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Iðjuþjálfi óskast til starfa í iðju- og dagþjálfun

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða iðjuþjálfa í 80%-100% starfshlutfall í dagvinnu í iðju- og dagþjálfun á Hlíð. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu og einlægan áhuga á starfi í þjónustu við aldraða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í umönnun og þjálfun skjólstæðinga
  • Skipuleggur og tekur þátt í iðju skjólstæðinga í samvinnu við starfsfólk
  • Nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat og skipuleggur íhlutunaráætlun fyrir notendur
  • Stuðlar að og viðheldur sjálfræði og sjálfstæði notenda og eflir þá til sjálfshjálpar
  • Veitir ráðgjöf, fræðslu og þjálfun á hjálpartæki til skjólstæðinga og starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í iðjuþjálfun og starfsleyfi 
  • Reynsla af starfi með öldruðum er æskileg
  • Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar