Læknisfræðileg myndgreining ehf.
Læknisfræðileg myndgreining ehf.

Móttökuritari - framtíðarstarf

Móttökuritari - Framtíðarstarf

Læknisfræðileg myndgreining/Röntgen Domus leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í fullt starf móttökuritara.

Röntgen Domus er elsta og stærsta fyrirtækið innan læknisfræðilegrar myndgreiningar á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 40 manns með breiða þekkingu og langa reynslu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Uppgjör í lok dags
  • Afgreiðsla tímapantana 
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar 
  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.  Kostur ef viðkomandi talar pólsku
  • Góð almenn þekking á tölvur
  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
PólskaPólska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Egilsgata 3, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar