Akureyri
Akureyri
Akureyri

Starfsfólk í skóla- og skammtímaþjónustu Akureyri

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða starfsfólk í þjónustu við fötluð börn í skóla- og skammtímaþjónustuna Brekkukot við Þórunnarstræti 99. Um er að ræða ótímabundið starf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í febrúar.

Starfsmaður í skammtíma- og skólavistun starfar hjá velferðarsviði Akureyrarbæjar eftir hugmyndafræði valdeflingar og þjónandi leiðsagnar eða annarri hugmyndafræði sem mætir þörfum notenda og ákveðin er af sviðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita gestum skammtímaþjónustu einstaklingsbundinn, félagslegan stuðning og aðstoð við athafnir daglegs lífs.
  • Vera í leik og starfi með börnum og ungmennum.
  • Að taka þátt í öllum almennum heimilisstörfum.
  • Að taka þátt í sí- og endurmenntun.
  • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfileikar og áhugi á að starfa með fólki,
  • Leitað er að sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingi. Starfið krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
  • Reynsla af starfi við persónulega aðstoð og starfi með börnum er kostur og þarf að koma fram í umsókn.
  • Sveigjanleiki, samviskusemi, og jákvætt viðhorf til fólks og vinnu.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku.
  • Umsækjandi þarf að hafa bílpróf.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt6. janúar 2025
Umsóknarfrestur1. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þórunnarstræti 99, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar