Sveitarfélagið Dalabyggð
Sveitarfélagið Dalabyggð
Sveitarfélagið Dalabyggð

Starfsfólk í íþróttamiðstöð - Dalabyggð

Dalabyggð óskar eftir að ráða starfsfólk í nýja íþróttamiðstöð að Miðbraut 8b í Búðardal sem tekin verður í notkun í febrúar 2026. Um er að ræða vaktavinnu, unnið er á morgun, kvöld og helgarvöktum í samræmi við opnunartíma. Lausar eru 6 stöður, leitað er eftir aðilum af öllum kynjum, í mismunandi starfshlutföll.

Íþróttamiðstöðin samanstendur af íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklefum, líkamsræktaraðstöðu og meðferðarherbergi til útleigu ásamt útisundlaug með heitum pottum, vaðlaug, sauna og köldu keri. Í húsinu verður hægt að iðka ýmsar íþróttir, bæði æfingar og keppni. Mætt er kröfum til keppni í körfubolta og sundi.

Íþróttamiðstöðin stendur í kjarna Búðardals í nálægð við grunn- og leikskóla. Í Dalabyggð eru m.a. stundaðar æfingar barna í fótbolta, handbolta, fimleikum og glímu. Einnig eru mikil tækifæri til útivistar og utan skipulagðs íþróttastarfs er einnig að finna tómstunda- og klúbbastarf fyrir fólk á öllum aldri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla og þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  • Klefa- og sundlaugargæsla, eftirfylgni með umgengnisreglum.
  • Almenn þrif og ræstingar innanhúss og á laugarsvæði.
  • Halda húsnæði og aðkomu að því snyrtilegu.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
  • Reynsla af þjónustustarfi er kostur.
  • Tölvukunnátta.
  • Æskilegt er að viðkomandi geti tjáð sig bæði á íslensku og ensku.
  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi, snyrtimennska, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
  • Lámarksaldur umsækjanda er 18 ára.
  • Starfsfólk þarf að standast hæfnispróf skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, sjá upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar um hæfnispróf starfsmanna sundlauga. Vinnuveitandi skipuleggur og greiðir fyrir hæfnispróf.
Fríðindi í starfi
  • Sundkort
Auglýsing birt23. október 2025
Umsóknarfrestur10. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Miðbraut 8, 370 Búðardalur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SundPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar