Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Starfsfólk í búsetuúrræði

Fjölskyldusvið Árborgar auglýsir eftir starfsfólki í búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun að Vallholti 9 laust til umsóknar. Starfshlutföll eru mismunandi en unnið er á morgun, kvöld, nætur og helgarvöktum. Störfin eru laus frá 1.janúar og frá miðjum janúar.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og er starfið skipulagt samkvæmt lögum nr. 38/2018 um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.40/1991 auk tengdra reglugerða.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta
  • Faglegt starf með íbúum
  • Að aðstoða og styðja íbúa við allar athafnir daglegs lífs, félagslega þátttöku og tómstundir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum með fötluðum æskileg    
  • Sveigjanleiki, frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund, góð framkoma og jákvætt viðmót
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur 
Auglýsing birt4. nóvember 2025
Umsóknarfrestur20. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vallholt 9, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar