Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Starfsfólk á Heimili fyrir börn

Við á Heimili fyrir börn í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu og framsæknu starfsfólki til liðs við okkur. Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að veita börnunum góða líðan og auka félagslega þátttöku. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu - og starfsáætlunum.

Mikið er lagt upp úr úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.

Leitað er að starfsfólki í 30-80% starfshlutfall frá byrjun desember. Um er að ræða tímabundin störf með möguleika á framlengingu.

Um er að ræða sólarhringsþjónustu svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum (kvöld-, helgar- og næturvöktum).

Á Heimili fyrir börn er starfað eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstæðs lífs og skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Umsóknafrestur er til og með 12.nóvember. Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
  • Stuðla að markvissu og skilvirku samstarfi við þjónustunotendur,aðstandendur, fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þjónustunotendur
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtaksemi og samviskusemi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð
  • Aldursskilyrði er 20 ár
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf
Auglýsing birt23. október 2025
Umsóknarfrestur12. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Tóbakslaus
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar