
Kvika banki hf.
Kvika er öflugur banki sem leggur mikla áherslu á nýsköpun og stafrænt vöruframboð. Á meðal vörumerkja samstæðunnar eru Kvika, Kvika eignastýring, TM, Lykill, Auður, Netgíró, Straumur og Aur.
Tilgangur Kviku er að auka samkeppni og einfalda fjármál viðskiptavina með því að nýta innviði og fjárhagslegan styrk.
Starfsumhverfið einkennist af samvinnu og liðsheild, með áherslu á frumkvæði starfsfólks og tækifæri til að starfa með fjölbreyttum hópi sérfræðinga með víðtæka reynslu.

Stafrænn leiðtogi regluvörslu
Kvika er öflugur banki sem stuðlar að umbreytingu og samkeppni á fjármálamarkaði.
Regluvarsla er sjálfstæð eining innan bankans sem heyrir undir forstjóra. Hlutverk regluvörslu er m.a. að fylgjast með og ganga úr skugga um að bankinn starfi samkvæmt gildandi lögum og reglum hverju sinni og sinnir sviðið jafnframt aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Með tilkomu æ flóknara og tæknilegra lagaumhverfis á fjármálamarkaði og aukinna krafna sem samhliða því eru gerðar til fjármálafyrirtækja leitum við nú að liðsauka í hópinn sem mun m.a. bera ábyrgð á þróun og innleiðingu á stafrænum lausnum regluvörslu. Starfsmaður heyrir beint undir regluvörð bankans.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í raungreinum, t.d. verkfræði eða tölvunarfræði
Minnst 5 ára starfsreynsla
Góð þekking á eða hæfni til að tileinka sér þekkingu á löggjöf á fjármálamarkaði
Reynsla af gerð áhættumata kostur
Þekking á fjármálamarkaði mikill kostur
Mikil greiningarhæfni og færni í úrvinnslu og framsetningu gagna
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi
Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðkoma að þróun og ábyrgð á innleiðingu á starfrænum lausnum regluvörslu, m.a. tengdum áhættuflokkun viðskiptasambanda
Umsjón með áhættumati fyrir peningaþvætti og aðgerðir gegn hryðjuverkum
Umsjón með kerfum og tæknilausnum sem regluvarsla nýtir, eftir atvikum í samráði við forstöðumann upplýsingatækni
Þátttaka í umbótaverkefnum
Greiningar og skýrslugerð
Auglýsing birt25. júní 2021
Umsóknarfrestur11. júlí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiInnleiðing ferlaMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkýrslur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Software engineer
Rivvo

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Junior Software Engineer
Bókun / Tripadvisor