Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Spennandi sumarstarf í búsetuþjónustu

Stuðningsfulltrúi óskast í sumarstarf hjá búsetuþjónustu Borgarbyggðar í 100% starfsfhlutfall. Skemmtilegt starf fyrir fólk sem elskar að vinna með fólki. Unnið er á fjölbreyttum vöktum. Áætlað ráðningatímabil er frá 15. maí til 31. ágúst 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðbeinir íbúum og aðstoðar þá við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg verkefni eftir því sem við á og þörf krefur
  • Sinnir umönnun og er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoðar þá varðandi félagslega og heilsufarslega þætti
  • Stuðlar að jákvæðum samskiptum við íbúa og annað samstarfsfólk
  • Veitir félagslegan stuðning í fjölbreyttum aðstæðum 
  • Styður íbúa til þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni til að sýna umhyggju, skilning, virðingu og þolinmæði 
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum er skilyrði
  • Ökuréttindi B
  • Hreint sakavottorð 
 
Auglýsing birt15. febrúar 2024
Umsóknarfrestur10. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Brákarbraut 10, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar