
ELKO
ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, opnaði þann 28. febrúar árið 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi á sínu sviði á Íslandi.
ELKO hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða þekkt vörumerki raftækja á lágu verði.
Verslanir eru sex og með samtals 5.000 m2 sölusvæði auk stórs vöruhúss.
Hjá ELKO starfa um 240 manns. Verslanir ELKO eru í Lindum, Skeifunni, Granda, Akureyri, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vefverslun ELKO.is

Söluráðgjafi í ELKO Skeifunni
Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni og frábæru samstarfsfólki? ELKO í Skeifunni leitar að traustum ráðgjafa sem er með mikla þjónustulund og jákvætt viðmót. ELKO leggur áherslu á góða nýliðamóttöku og þjálfun. Starf söluráðgjafa felur meðal annars í sér að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, verðmerkja og stilla upp vörum eftir verslunarstöðlum. Vinnutími er almennt frá kl. 11-19 en getur breyst aðeins vegna starfsmannafræðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf á vörum og þjónustu
- Áfylling og uppstilling
- Verðmerkingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Lyfju, Krónunni og N1
- Aðgangur að velferðarpakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
- Niðurgreiddur hádegismatur
Auglýsing birt21. júlí 2025
Umsóknarfrestur31. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Skeifan 19, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viltu verða djúsari? (Fullt starf )
Joe & the juice

Þjónustufulltrúi
Petmark ehf

Apótekarinn Akureyri (Hrísalundur)
Apótekarinn

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Viltu vinna í líflegu og jákvæðu umhverfi með góðu teymi?
Polarn O. Pyret

50% starf og helgarstörf á Laugaveginum
Flying Tiger Copenhagen

Akstur og vinna í vöruhúsi
Dropp

Framlína Hlutastarf / Frontline Part Time
Hvammsvík Sjóböð ehf

Starfsfólk óskast í sjúkrahúsapótek Lyfjaþjónustu
Landspítali

Kaffibarþjónar Fullt starf
Kaffitár

Leikskólinn Gimli - mötuneyti
Skólamatur

Selfoss/Hveragerði, fullt starf
Al bakstur ehf