Sölumaður í verslun
Við bjóðum upp á kaffið - og þú segir okkur frá þér
Við erum að leita að kaffisérfræðingi sem er sölu- og þjónustudrifinn í verslanir Nespresso.
Hjá okkur starfar góður hópur sem hefur það að markmiði að taka vel á móti viðskiptavinum og veita framúrskarandi þjónustu.
Helsta hlutverk kaffisérfræðinga hjá Nespresso er að bjóða viðskiptavinum upp á einstaka þjónustu og leiðbeina þeim með val á kaffi og kaffivélum.
Það er kostur að umsækjendur hafi reynslu af verslunarstörfum en þurfa að:
- Vera framúrskarandi í samskiptum, sýna þjónustulund og vera jákvæð að eðlisfari
- Geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og drifkraft
- Hafa metnað til að ná árangri i starfi
- Vera íslenskumælandi
Við erum að leita að manneskju í fullt starf í verslanir okkar í Kringlunni og í Smáralind. Aldurstakmark er 20 ára.
Nespresso á Íslandi hefur þjónustað kaffiþyrsta Íslendinga í 6 ár.
Kaffið frá Nespresso er í endurvinnanlegum álhylkjum og leggjum við og viðskiptavinir okkar mikla áherslu á endurvinnslu.
Verslanir Nespresso eru í Kringlunni, í Smáralind og á Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir Lilja, lilja@nespresso.is
Við hlökkum til að heyra í þér.