Verkfæri ehf.
Verkfæri ehf starfar við sölu og innflutning á tækjum og búnaði til bygginga- og jarðvinnuverktaka. Einnig er fyrirtækið stór aðili í sölu og þjónustu á GPS búnaði. Hjá fyrirtækinu starfa hátt í 30 manns sem búa yfir mikilli reynslu á ýmsum sviðum.
Verkfæri ehf er umboðsaðili fyrir Merlo, Kobelco, Haulotte, Powerscreen, Terex, Clark o.fl.
Fyrirtækið er nýlega flutt í nýtt og glæsilegt 600+ m2 húsnæði í Tónahvarfi 3 í Kópavogi en þar er skrifstofuaðstaða, sýningarsalur og verkstæði. Þá rekur fyrirtækið einnig verkstæði á Akureyri.
Einnig erum við með þjónustubíla og samstarfsaðila á landsbyggðinni fyrir verkstæðisvinnu.
Sölumaður á vélum og tækjum óháð búsetu
Verkfæri ehf. óskar eftir öflugum sölumanni með góða samskiptafærni og þjónustulund til að styðja við söluteymi fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt verkefni í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem reynir á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og gott skipulag. Lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins. Eftirsóknarvert er að fá til liðs við okkur þá sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina og hafa jákvætt hugarfar.
Starfið getur verið unnið óháð búsetu fyrir réttan aðila.
Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á ob@vvv.is fyrir frekari upplýsingar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Söluráðgjöf á vélum, tækjum og búnaði
- Öflun nýrra viðskiptatengsla
- Þjónusta við núverandi viðskiptavini
- Tilboðsgerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæð vinnubrögð og góð þjónustulund
- Færni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð og gott skipulag
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Gott vald á ensku, bæði töluðu og rituðu máli
- Reynsla í sölumennsku skilyrði
- Brennandi áhugi á vinnuvélum og tækjum
- Góð almenn tölvuþekking kostur
Auglýsing birt2. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaMjög góð
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Bugðufljót 11, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSölumennskaTeymisvinnaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Viðskiptastjóri
Rún Heildverslun
Þjónustufulltrúi - Service Clerk
LAVA Centre
Sölu-og kynningarfulltrúi
HR Monitor (CEO HUXUN ehf)
Heilsuhúsið - Sala og ráðgjöf
Heilsuhúsið
Sölufulltrúi - Lagnaverslun Breidd
Byko
Starfsmaður á þjónustuver óskast
AB Varahlutir
Mötuneyti starfsfólks í Skarðshlíðarskóla
Skólamatur
Leiðsögn í Aurora Basecamp/ Guiding in Aurora Basecamp
Aurora Basecamp
Starfsmaður á verslun/lager í Hafnarfirði
Ferro Zink hf
Hraunvallaskóli - mötuneyti
Skólamatur
Afgreiðsla - Mosfellsbæ
Mosfellsbakarí
Hafnarfjörður - mötuneyti starfsfólks í grunnskóla
Skólamatur