Hraunvallaskóli - mötuneyti
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti sitt í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.
Vinnutíminn er frá kl.10:00 til 14:00 alla virka skóladaga.
Um tímabundið starf er að ræða eða til 5.júní 2025.
Starfið felst í lokaeldun hádegismáltíða, undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum i eldhúsi. Starfsmenn mötuneyta panta inn af pöntunarvef Skólamatar og senda inn dagsskýrslur.
Hæfniskröfur:
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Jákvæðni, snyrtimennska, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsækjendur eru beðnir að skila inn ferilskrá með upplýsingum um reynslu/menntun og fyrri störf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fyrirspurnir um starfið berist á radningar@skolamatur.is.
Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið.