Sölumaður á varahlutum og þjónustu
Verkfæri ehf leitar að öflugum sölumanni sem á að starfa í sölu á varahlutum, slitflötum og þjónustu.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu og þekkingu á þessu sviði en ekki síður brennandi áhuga á sölumennsku og metnaði í starfi.
Starfið felur í sér heimsóknir til viðskiptavina Verkfæra ehf sem eru um allt land og þar viðkomandi að geta unnið sjálstætt.
Verkfæri ehf er annars með starfstöð í Bugðufljóti 11 í Mosfellsbæ og Lækjavöllum 2b á Akureyri.
Ferðast um landið og heimsækir viðskiptavini sem eiga tækjabúnað sem við og aðrir erum að selja.
Vélvirki, Bifvélavirki eða með góða reynslu á þessu sviði.
Ef að viðskomandi er með reynslu í dekkjum og tengdum búnaði þá kemur það sterkt inn.
Verkfæri ehf bíður upp á góða vinnuaðstöðu í Bugðufljóti 11.
Viðkomandi fær síma eða símanúmer frá Verkfærum ehf ásamt fartölvu.