Sölufulltrúi óskast!
Hæ!
Við auglýsum eftir framúrskarandi einstaklingum í söluver Hringdu. Um hlutastarf er að ræða þar sem unnið er á 4 klst vöktum, á virkum dögum milli 12 og 18. Aldurstakmark er 18 ár.
Í starfinu felst að selja vörur og þjónustu Hringdu til núverandi og nýrra viðskiptavina. Þú geislar af jákvæðni, hugsar í lausnum, elskar mannleg samskipti og vilt umfram allt veita bestu söluráðgjöfina!
Hvað ertu að fara gera?
- Selja áskriftir að interneti & síma
- Hringja út sölulista og veita ráðgjöf til núverandi viðskiptavina
- Afgreiða pantanir og breytingar á þjónustum
- Eiga samskipti við okkar helstu þjónustuaðila
- Tækla ýmis önnur verkefni sem koma upp á
Ef þú hefur:
- Gaman af sölumennsku og öðru fólki
- Góða samskiptahæfileika og mikla þjónustulund
- Góða íslensku- og enskukunnáttu
Ættirðu að sækja um hjá okkur!
Þú getur skilað inn umsókn ásamt ferilskrá í Alfreð umsóknarkerfinu.
Um okkur
Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum sendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar og skálum alla föstudaga. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi, ketti & hunda.
Hringdu hefur hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndafyrirtæki VR árin 2017, 2018, 2019 og 2023 og sem Fyrirtæki ársins 2020, 2021, 2022 og 2024.
Ánægðustu viðskiptavinir í net- og símaþjónustu eru hjá Hringdu 2019-2023 samkvæmt Meðmælingu Maskínu.
- Aðgangur að Hopp hjólum
- Líkamsræktarstyrkur
- Frí net- og símaáskrift