Emmessís ehf.
Emmessís ehf.

Sölufulltrúi með meirapróf - tímabundið starf

Sumarstarf hjá Emmessís er tækifæri til framtíðar!

Á hverju ári ráðum við fólk í alls konar sumar- og afleysingastörf sem geta í mörgum tilvikum verið upphafið að farsælum starfsferli og veitt dýrmæta reynslu sem nýtist til framtíðar.

Við leggjum mikla áherslu á að skapa jákvætt starfsumhverfi þar sem öll fá tækifæri til að þróast og vaxa í starfi. Margt af okkar fremsta fólki í dag byrjaði í sumarstarfi, lærði og þroskaðist og tók virkan þátt í uppbyggingu öflugrar liðsheildar í framsýnu fyrirtæki.

Sendu okkur umsókn og sjáðu hvort það verður ekki byrjunin á spennandi ferli.

Emmessís er mikilvægur hluti af 1912 samstæðunni en þar starfa um 150 manns sem halda utan mörg af vinsælustu vörumerkjum landsins.

Miðað er við að viðkomandi hefji störf 1. apríl og vinni út ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og uppbygging viðskiptatengsla
  • Tiltekt og dreifing á vörum til viðskiptavina
  • Vörukynningar þ.m.t. kynning nýrra vara til viðskiptavina
  • Vöruáfyllingar á frystibifreið og frágangur vara á endursölustöðum
  • Þrif og viðhald á vörubifreið
  • Ýmis tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt meirapróf
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Þjónustulund og samskiptahæfni
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvæðni
Auglýsing birt5. mars 2025
Umsóknarfrestur17. mars 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bitruháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar