Flügger Litir
Flügger Litir
Flügger Litir

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf

Flügger leitar að sölu- og þjónusturáðgjafa til starfa í fullt starf í verslun


Hefur þú áhuga á innanhúshönnun, málningu, litum og verkferlum?

Við leitum að aðila sem finnst spennandi að aðstoða viðskiptavini við málningarverkefnin sín.
Starfið felur í sér afgreiðslu, þjónustu og ráðgjöf til viðskiptiptavina, ásamt því að tryggja að verslunin sé snyrtileg og aðgengileg fyrir viðskiptavini.

Við leitum eftir ábyrgum, traustum og þjónustuliprum einstakling sem býr yfir góðri samskiptahæfni. Kostur væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Hjá Flügger eru verkefnin fjölbreytt og alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá okkur. Við erum samhent teymi sem þrífst á því að eiga góða vinnudaga saman og tryggja viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu þegar þeir ætla að breyta til hjá sér.

Leitað er að aðila sem náð hefur 18 ára aldri og við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um starfið, óháð kyni eða bakgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla
  • Sala
  • Þjónusta
  • Ráðgjöf
  • Áfyllingar
Auglýsing birt25. september 2025
Umsóknarfrestur5. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stórhöfði 44, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar