
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.
Skurðhjúkrunarfræðingur / hjúkrunarfræðingur á skurðstofu
Klíníkin stækkar – leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum á skurðgang!
Klíníkin Ármúla hefur nýverið tekið í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði sem býður upp á frábæra aðstöðu fyrir sjúklinga og starfsfólk. Á næstu mánuðum stendur til að opna fleiri skurðstofur og því vantar okkur öfluga skurðhjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinga með reynslu á skurðstofu í okkar teymi!
Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni við hjúkrun aðgerðarsjúklinga, undirbúning og aðstoð í skurðaðgerðum. Við leitum að einstaklingi sem vill vinna í öflugu teymi þar sem öryggi, samvinna og fagleg þróun heilbrigðisþjónustu eru höfð að leiðarljósi.
Um starfið:
- Starfshlutfall: 80–100%
- Vinnutími: Virkir dagar á dagvinnutíma.
- Ráðning er hugsuð til lengri tíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hjúkrun og umönnun aðgerðarsjúklinga fyrir, í og eftir aðgerð.
- Undirbúningur og aðstoð við skurðaðgerðir.
- Umsjón með búnaði, tækjum og skurðáhöldum.
- Teymisvinna og þátttaka í umbótastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skráð hjá Embætti landlæknis.
- Menntun í skurðhjúkrun og/eða reynsla við skurðhjúkrun.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði vinnubrögð.
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á faglegri þróun og að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar.
Auglýsing birt28. janúar 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaFrumkvæðiHreint sakavottorðMannleg samskiptiReyklausSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á öldrunardeild Landakoti
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Salahverfi
Heilsugæslan Salahverfi

Aðstoðardeildarstjóri á Eir, blundar í þér stjórnandi?
Eir hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur í innlagnastjórn
Landspítali

Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í verkefnavinnu samhliða klínisku starfi á smitsjúkdómadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Kringlan
Landspítali

Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðadagdeild lyflækninga
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæslu HSU Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sérfræðingur í öldrunarhjúkrun
Landspítali