

Skólastjóri Reykhólaskóla
Reykhólahreppur auglýsir stöðu skólastjóra Reykhólaskóla lausa til umsóknar. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki sem viðkomandi er ætlað að leiða. Í skólanum eru innan við 30 nemendur á grunnskólaaldri og 12 nemendur á leikskólaaldri. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra á þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að starfa skv. lögum og reglugerð um grunn- og leikskóla
- Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
- Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins í heild
- Að stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og uppeldis- og menntunarfræða er kostur
- Reynsla af störfum á sviði stjórnunar, rekstrar og þróunarstarfi er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Faglegur metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (7)

Skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur
Bolungarvíkurkaupstaður

Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Skólastjóri í Vopnafjarðarskóla
Vopnafjarðarskóli

Leikskólinn Tröllaborgir: Skólastjóri
Akureyri

Skólastjóri Varmahlíðarskóla
Sveitarfélagið Skagafjörður

Skólastjóri
Fjallabyggð