Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Matráður við Reykhólaskóla

Laust er til umsóknar starf matráðs við Reykhólaskóla, sameinaðs grunn- og leikskóla á Reykhólum.
Um er að ræða 100% starf frá og með 1. maí 2026.

Það kemur til greina að ráða inn afleysingu í maí og júní 2026.

Í starfinu fellst m.a. að útbúa hollar og góðar máltíðir fyrir nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með eldhúsi.
  • Útbúa morgunmat, millimál, hádegisverð og kaffitíma þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni og hollustu.
  • Skipulag og umsjón með þrifum á mötuneyti og matsal.
  • Innkaup á matvöru og annarri rekstrarvöru fyrir mötuneytið.
  • Skipulag á matseðlum, allt að mánuð fram í tímann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær menntun og reynsla á sviði matargerðar.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð skipulagshæfni
  • Metnaður og áhugi á matargerð
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
  • Menntun í matargerð er kostur
  • Reynsla af starfi í matargerð er kostur
  • Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæði í störfum
Fríðindi í starfi

Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.

Auglýsing birt12. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykhólaskóli, Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar