Lífeyrissjóður verzlunarmanna
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Starf í móttökueldhúsi / matráður

Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir skipulögðum jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í starf í eldhúsi/mötuneyti. Hjá sjóðnum vinna um 65 manns og auk eldhússins eru tvær kaffistofur starfsfólks og lítil verslun.

Vinnutími er frá 9 - 15

Í boði er traustur og góður vinnustaður.

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst m.a. í að taka á móti elduðum og tilbúnum mat til framreiðslu í hádeginu, sjá um framsetningu og frágang eftir hádegismat. Einnig felst í starfinu undirbúningur og þjónusta á fundum og viðburðum með veitingum, ásamt því að halda utan um sérstök þemu í eldhúsinu, morgunkaffi, starfsmannaviðburði og kaffiaðstöðu starfsfólks.

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af störfum í eldhúsi/mötuneyti er æskileg.

Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar