Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Sumarafleysing í mötuneyti Samgöngustofu

Samgöngustofa leitar að duglegri, jákvæðri og þjónustulipri manneskju til sumarstarfs í mötuneyti stofnunarinnar. Starfið er tilvalið fyrir áhugamanneskju um góðan mat og skipulagða vinnu í skemmtilegu og vinalegu starfsumhverfi.

Um er að ræða 100% starf yfir sumartímann (júní, júlí og ágúst), með möguleika á nánara tímabili eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við dagleg verkefni í eldhúsi, svo sem undirbúning og framreiðslu hádegismatar og fundarkaffis.
  • Uppvask og frágangur.
  • Þrif í eldhúsi og mötuneyti.
  • Umsjón með kaffistofum starfsfólks.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast mötuneyti og kaffistofum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á mat og matseld.
  • Reynsla sem nýtist í starfi, t.d. úr eldhúsi, mötuneyti, kaffihúsi eða sambærilegu umhverfi, er kostur.
  • Góð þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og vönduð vinnubrögð.
  • Snyrtimennska og stundvísi.
  • Góð færni í íslensku.

Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt sumarstarf, góð starfsaðstaða og vinalegt vinnuumhverfi.

Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar