
Skólastjóri
Leitað er að drífandi einstaklingi í starf skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar.
Starfið felur í sér að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af dugnaði og atorku samkvæmt gildandi fræðslustefnu, með virðingu, metnað og gleði að leiðarljósi.
Starfið er í Fjallabyggð og miðað er við að ráðning sé frá og með 1. ágúst 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg forysta og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við fræðslustefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla.
- Stjórn og ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
- Starfsmannamál, s.s. ráðningar, starfsþróun og vinnutilhögun.
- Samstarf við aðila í skólasamfélaginu.
- Samstarf við forráðamenn nemenda og upplýsingagjöf um starfsemi grunnskólans.
- Önnur verkefni er varðar stjórnun grunnskólans í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun ásamt leyfisbréfi.
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða haldbær stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi.
- Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð.
- Reynsla í fjármálastjórnun kostur.
- Rík leiðtoga- og samskiptahæfni.
- Góð skipulagsfærni.
- Drifkraftur, jákvæðni og metnaður.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Gránugata 24, 580 Siglufjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðDrifkrafturKennslaMannauðsstjórnunMannleg samskiptiStefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Leikskólinn Tröllaborgir: Skólastjóri
Akureyri

Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Skólastjóri Varmahlíðarskóla
Sveitarfélagið Skagafjörður

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Sumarhús

Aðstoðarskólastjóri
Grunnskólinn á Hellu

Skólastjóri grunnskóla í Vesturbyggð
Vesturbyggð

Leikskólastjóri Vesturbyggðar
Vesturbyggð