Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Aðstoðarleikskólastjóri

Leikskólinn Sumarhús, nýlegur leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða aðstoðarleikskólastjóra til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Í leikskólanum er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og er skólinn á heilsubraut og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, þar sem næring, hreyfing, sköpun og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls er í forgrunni. Markviss málörvun, leikurinn og lífsleikni eru einnig mikilvægur hlekkur í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling að koma að uppbyggingu leikskólans.

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og daglegur rekstur ásamt leikskólastjóra
  • Fagleg forysta á sviði kennslu og skólaþróunar
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Að leikskólinn starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu Mosfellsbæjar
  • Virkt og gott samstarf við alla aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf
  • Kennslureynsla á leikskólastigi 
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót 
  • Fagleg framkoma
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • Afsláttur til starfsfólks af vistunargjöldum í leikskóla.

36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar.

Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur16. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar