Heklukot
Heklukot
Heklukot

Aðstoðarleikskólastjóri, sérkennslustjóri og deildarstjóri

Leikskólinn Heklukot á Hellu auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar:

  • Aðstoðarleikskólastjóri (100% tímabundið í eitt ár)
  • Sérkennslustjóri (80–100% starf)
  • Deildarstjóri (100% starf)

Heklukot er 5 deilda leikskóli með um 90 nemendur. Leikskólinn er Grænfánaleikskóli ásamt því að vera heilsuleikskóli með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun barna. Leikskólinn stendur á tímamótum þar sem verið er að byggja nýjan 8 deilda leikskóla sem stefnt er á að opni árið 2028. Verður nýi leikskólinn undir sama þaki og grunn- og tónlistarskólinn og því aukin tækifæri til samstarfs.

Unnið er eftir starfslýsingu Félags leikskólakennara, félags stjórnenda leikskóla og sambands íslenskra sveitarfélaga.


Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf kennara eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun og sérkennslu
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði (á stig B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum)
  • Góð tölvukunnátta
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Ráðið er í störfin frá og með ágúst 2026 og verða umsækjendur að geta hafið störf eigi síðar en 10. ágúst n.k.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri á [email protected] eða í síma 4887045 / 6910383.

Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Útskálar 2, 850 Hella
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar