
Vopnafjarðarskóli
Í Vopnafjarðarskóla eru um 70 nemendur. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn.
Gildi skólans er virðing, ábyrgð og vellíðan. Skólinn vinnur á anda jákvæðs aga og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.

Skólastjóri í Vopnafjarðarskóla
Vopnafjarðarhreppur leitar að öflugum, metnaðarfullum og traustum einstaklingi með góða þekkingu á skólastarfi til að leiða framsækið skólastarf. Um að ræða tímabundna stöðu til eins árs, skólaárið 2026-2027 með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, starfsmannamálum, fjármálum og rekstri skólans
- Fagleg forysta skólans um þróun náms og kennslu og farsæld nemenda
- Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
- Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild
- Fagleg forysta og þróun skólastarfs í samræmi við lög um grunnskóla, aðalnámskrá grunnaskóla, Farsæld barna og menntastefnu Vopnafjaðar.
- Að leiða starf í framsæknu og metnaðarfullu skólasamfélagi sem leggur m.a. áherslu á góðan skólabrag, teymiskennslu, lýðheilsu og umhverfismennt.
- Að stuðla að góðu samstarfi við aðila skólasamfélagsins; starfsfólk, nemendur, foreldra og nærsamfélagið sem og stjórnsýslu.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu og reynsla af kennslu í grunnskóla er skilyrði
- Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg.
- Leiðtogahæfileikar, lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, jákvæðni og rík þjónustulund.
- Skipulögð vinnubrögð, stjálfstæði og frumkvæði
- Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Þekking á þeim lögum, reglugerðum og öðrum opinbergum fyrirmælum sem varða skólastarf.
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lónabraut 16, 690 Vopnafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




