Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli

Við í Öldutúnsskóla auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða í 100% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða 100% starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í skólanum að morgni og eftir hádegi í frístundaheimilinu Selinu.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. – 10. bekk.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla og áhugi af starfi með börnum og unglingum kostur
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Stundvísi og samviskusemi
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
Tekur þátt í skipulagningu, undirbúning og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt12. september 2022
Umsóknarfrestur26. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar