FOB ehf.
FOB ehf.

Skipulögð og jákvæð aðstoðarkona og aðstoðar verkstjórnandi óskast

Ég er 24 ára jákvæður og lífsglaður strákur sem leitar að ábyrgðarfullum og traustum einstaklingi til að bætast í minn frábæra NPA aðstoðarvinahóp og jafnframt vera aðstoðar verkstjórnandi hjá mér.

Um er að ræða 50-70% starf á morgun-og/eða dagvöktum. Einnig stendur til boða viðbótarvaktir um kvöld eða helgar og/eða tilfallandi aðstoð á ferðalögum innan lands-og utan, allt skv. nánara samkomulagi.

Ég er í hjólastól og þarfnast aðstoðar við verkefni daglegs lífs - allt frá heimilisverkum og persónulegri umönnun yfir í skemmtilegar og fjölbreyttar athafnir utan heimilis.

Um mig:

Ég er félagslyndur og lífsglaður og hef fjölbreytt áhugamál. Ég nýt þess að fara á tónleika, í leikhús og bíó, út að borða, ferðast innanlands og erlendis - og slaka á heima í góðum félagsskap.

Ég leita að aðstoðarmanni sem:

  • Er skipulagður, sjálfstæður og hlýr í samskiptum
  • Helst 35 ára eða eldri
  • Er með bílpróf
  • Talar íslensku
  • Er með hreint sakavottorð
  • Hefur skilning á og virðingu fyrir hugmyndafræði notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) sem byggir á sjálfstæðu lífi - sjá nánar á npa.is
Auglýsing birt12. ágúst 2025
Umsóknarfrestur31. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 9, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar