Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Skipulagsfulltrúi

Við leitum eftir sérfræðing til þess að taka þátt í að efla þjónustu sveitarfélagsins. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin til að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.

Viðkomandi mun starfa í samræmi við hlutverk skipulagsfulltrúa í skipulagslögum. Auk þess mun viðkomandi hafa eftirlit með framkvæmdaleyfisskyldum framkvæmdum og vinna með skipulagsáætlanir.

Viðkomandi mun heyra undir stjórnsýslu- og þjónustusvið Borgarbyggðar, næsti yfirmaður er deildarstjóri skipulags- og byggingarmála.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem arkitekt, landslagsarkitekt eða skipulagsfræðingur.
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði.
Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg.
Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis.
Þekking og hæfni í íslensku, bæði töluðu sem rituðu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu.
Útgáfa framkvæmdarleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingaerindi.
Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingaleyfa.
Auglýsir skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar lögum samkvæmt.
Undirbúningur funda skipulags- og byggingarnefndar.
Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
Auglýsing birt21. júní 2022
Umsóknarfrestur2. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar