Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands

Sérfræðingur í líkanreikningum á sviði ofanflóða

Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í líkanreikningum hjá deild snjóflóða og skriðufalla sem er á Þjónustu- og rannsóknasviði. Á deildinni starfa rúmlega 20 sérfræðingar við ýmis störf sem tengjast ofanflóðum, bæði við vöktun, rannsóknir og hættumat. Starfsfólk deildarinnar starfar á fjórum starfsstöðvum: Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og Reykjavík. Einnig tilheyra deildinni snjóathugunarmenn sem eru staðsettir víða um land. Viðkomandi hefur val um starfsstað úr ofangreindum fjórum starfsstöðvum.

Starfið felst í sérfræðivinnu með eðlisfræðileg ofanflóðalíkön og fleiri líkanreikninga. Viðkomandi verður hluti af öflugu og samstilltu teymi ofanflóðasérfræðinga Veðurstofunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Líkanreikningar og þróun líkana í tengslum við ofanflóðahættumat og ofanflóðavöktun
  • Snjóflóða-, skriðu- og krapaflóðalíkanreikningar í tvívíðum dýpisheilduðum líkönum og þrívíðum líkönum (OpenFoam)
  • Líkanreikningar fyrir svæðisbundnar krapaflóða- og skriðuspár 
  • Greining á aðdraganda veðuratburða með vélanámi (machine learning)
  • Þátttaka í öðrum verkefnum tengdum ofanflóðahættumati
  • Þátttaka í alþjóðlegum og innlendum samstarfsverkefnum
  • Innri og ytri kynningar, s.s. samskipti við hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í eðlisfræði, jarðeðlisfræði, stærðfræði eða verkfræði
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð þekking og reynsla af líkanreikningum
  • Reynsla af þrívíðum líkanreikningum í OpenFoam og úrvinnsla niðurstaðna er kostur
  • Geta til að greina flókin gögn og taka ákvarðanir þrátt fyrir óvissar forsendur
  • Áhugi á náttúruvá og að taka þátt í að þróa aðferðir til þess að draga úr hættu vegna náttúruhamfara
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar