
Tinna ehf.
TINNA ehf. flytur inn garn frá Sandnesgarn í Noregi, Hjertegarn í Danmörku og Himalaya ásamt Knitpro og Prym prjónavörum.
Endursöluaðilar Tinnu eru um land allt. Verslun er á Nýbýlavegi 30 og www.tinna.is. TINNA prjónablað er gefið út tvisar á ári ásamt rafrænum uppskriftum.

Skapandi sölustarf
Við í Tinnu leitum að hressum og hörkuduglegum starfsmanni með brennandi áhuga á prjónaskap.
Við erum fámennur vinnustaður með frábæru fólki sem óskar eftir lykilmanneskju í söluteymið okkar. Starfið er ótrúlega fjölbreytt og alltaf ný og skemmtileg verkefni á dagskrá.
Við leitum að sölumanni með frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og áreiðanleika.
Fagleg, jákvæð og snyrtileg framkoma er mikilvæg. Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu.
Vinnutími er 9:00 - 16:00 mán til fim og 9:00 -15:00 fös.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hlökkum til að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á sölupöntunum og úrvali í verslunum söluaðila.
- Dagleg áfylling á vörur og vöruútstilling hjá söluaðilum í Reykjavík og á landsbyggð.
- Vörusamantekt, vörumóttaka og reikningagerð á lager.
- Afgreiðsla, þjónusta, afgreiðsla netpantana og afgreiðsla í verslun Tinnu.
- Lagertiltekt og útréttingar.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vera með auga/reynslu fyrir útstillingum og sniðugum lausnum á framsetningu á vöru.
- Geta unnið í krefjandi, hröðu og síbreytilegu starfsumhverfi.
- Vera árangursdrifinn og lausnamiðaður að leysa úr verkefnum sem liggja fyrir með fókus á sölu.
- Góð tölvukunnátta skilyrði og þekking á DK tölvukerfi kostur. Færni í samfélagsmiðlum.
- Hefur gaman af því að vinna bæði í teymi eða sjálfstætt.
- Vera heilsuhraustur og í góðu formi fyrir vöruflutninga og vörutilfærslur í verslunum.
- Reynsla af verslunar- og sölustörfum skilyrði, ásamt góðri íslensku og enskukunnáttu.
- Reynsla af útkeyrslu/akstri.
- Tinna er reyklaus vinnustaður.
Fríðindi í starfi
Létt hádegissnarl, kaffi og sódavatn. Alltaf eitthvað gott að nasla með kaffinu.
Auglýsing birt7. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Nýbýlavegur 30, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaAlmannatengsl (PR)Almenn ökuréttindiÁreiðanleikiAðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniLagerstörfLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniÖkuréttindiReyklausSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaSölumennskaStundvísiTeymisvinnaTóbakslausÚtkeyrslaVandvirkniVeiplausVinna undir álagiVöruflutningarVöruframsetningÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verslunarstjóri
Rafkaup

Söludrifinn viðskiptastjóri
Straumur

Söluráðgjafi varahluta
Fastus

Ráðgjafi á Ísafirði
Sjóvá

Verslunarstjóri fyrir Curvy og Stout
Curvy verslun

Þjónustufulltrúi á sölusviði
Adam & Eva

Eftirminnilegt sumar í vændum?
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Hlutastarfsmaður um helgar í Augað gleraugnaverslun Kringlunni
Augað gleraugnaverslun

Deildarstjóri sölusviðs
Dineout ehf.

Egilsstaðir: Söluráðgjafi í verslun
Húsasmiðjan

Löggiltur fasteignasali og nemi í löggildingarnámi.
Trausti fasteignasala ehf.

Sölufulltrúi
GreenFish